Niðurstöður viðbótarútgáfu

Útboð RIKB 20 0205 viðbótarútgáfa


Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 7. febrúar sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 20 0205 fyrir 363 m.kr. Selt magn í flokki RIKB 20 0205 nemur því 7.088 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð RIKB 20 0205 eftir útboð er nú 7.088.000.000 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 12. febrúar 2014.