Ársreikningur Landsnets hf. fyrir árið 2013

- Hagnaður ársins nam 2.183 milljónum króna -


Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 2.183 mkr. fyrir árið 2013 samanborið við hagnað að fjárhæð 801 mkr. á árinu 2012.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 6.568 mkr. samanborið við 5.306 mkr. á fyrra ári og hækkar því um 1.262 mkr. á milli ára. Hækkun á rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði skýrist einkum af hækkun gjaldskrár til stórnotenda í byrjun árs.

Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 3.870 mkr. á árinu 2013 á móti 4.339 mkr. á árinu 2012. Þau lækka um 469 mkr. en það skýrist einkum af lægri verðbólgu en stærsti hluti lánasafns félagsins er í íslenskum krónum.

Fjárfestingar voru nokkuð hærri á árinu en á fyrra ári og numu um 6.506 mkr. samanborið við 1.591 mkr. árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru lagning sæstrengs til Vestmannaeyja og bygging launaflsvirkis við Grundartanga, en báðar þessar fjárfestingar eru til að auka áreiðanleika afhendingar raforku í flutningskerfinu. Þá var einnig lokið byggingu tengivirkis og línu við Búðarháls. Heildarfjárhæð þessara fjárfestinga nam um 5.000 mkr.

Eiginfjárhlutfall í árslok var 19,9% samanborið við 17,7% í lok fyrra árs. Eigið fé í árslok nam 15.446 mkr. samanborið við 13.263 í lok árs 2012. Heildareignir félagsins í árslok námu 77.608 mkr. samanborið við 74.873 mkr. í lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 62.162 mkr. samanborið við 61.610 mkr. í lok fyrra árs.

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 9.917 mkr. Handbært fé frá rekstri nam 7.733 mkr. árið 2013 samanborið við 5.808 mkr. árið 2012.

Rekstrarniðurstaða ársins er betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og liggur það aðallega í jákvæðari niðurstöðu fjármagnsliða. Rekstrarhæfi félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 mun handbært fé standa undir fjárfestingum og afborgunum lána.

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. febrúar 2014.

 

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna):

Sjá viðhengi: Fréttatilkynning

 

Frekari upplýsingar veitir:
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála,
sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is.


Attachments

Landsnet Fréttatilkynning.pdf Ársreikningur Landsnets 2013.pdf