HS Orka hf leggur fram ársreikning 2013


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag ársreikning fyrirtækisins fyrir reikningsskilaárið 2013. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Ársreikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði ársreikningsins eru þessi:

  • Rekstartekjur fyrirtækisins námu 7.031 milljónum á rekstarárinu 2013, samanborið 6.881 m.kr. árið 2012. Tap ársins af reglulegri starfsemi nemur 355 m.kr. samanborið við 653 m.kr hagnað árið 2012. Heildar tap er 434 m.kr, samanborið við 5.509 m.kr hagnað. árið 2012.
     
  •  EBITDA er alls um 2.603 m.kr. 2013 en var 2.923 m.kr. á sama tímabili 2012.
  • Eiginfjárhlutfall 31. desember 2013 er mjög sterkt eða 58,0% samanborið við 53,4% í árslok 2012.
     
  • Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækisins nú eins og oft áður.  Þar vegur þyngst breyting á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) sem er neikvætt 4.138 m.kr. en var neikvætt um 201 m.kr. á árinu 2012.  Á móti vegur 1.602 m.kr. gengishagnaður á árinu 2013, á árinu 2012 var hins vegar gengistap 782 milljónir
     
  • EBITDA er áfram góð og tekjur hækka um 2% eða um 150 m.kr. og námu 7.031 m.kr., en voru 6.881  m.kr. fyrir árið 2012. Að móti hækkar rekstrarkostnaður um 17% eða sem nemur 787 m.kr. milli sömu tímabila. Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna sölu á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo verulega úr tekjuaukningunni á móti. Á kostnaðarhliðinni hafa orkukaup aukist nokkuð og flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á gjaldskrá Landsnets. Ráðist var í viðhaldsboranir á tveimur holum á tímabilinu en engar slíkar boranir voru á sama tímabili í fyrra. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga.  


Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, f
orstjóri HS Orku hf, í síma 855 9301.


Attachments

HS Orka Financial Statement 31 December 2013 - final (5)-.pdf