Landsbankinn gefur út áhættuskýrslu fyrir 2013


Landsbankinn hefur gefið út áhættuskýrslu fyrir árið 2013. Í henni er gerð ítarleg grein fyrir öllum þáttum áhættustýringar bankans og þeim aðferðum sem hann beitir við mat á áhættu. Með áhættuskýrslunni fæst enn gleggri mynd af stöðu bankans en áður. Skýrslunni er m.a. ætlað að veita upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans, samsetningu eiginfjár og aðra mikilsverða þætti á þessu sviði.

Þetta er í annað sinn sem Landsbankinn hefur gefið út sérstaka áhættuskýrslu en áður hefur verið fjallað ítarlega um áhættustýringu í ársskýrslum bankans. Skýrslan er á ensku og ber nafnið Risk and Capital Management 2013, Pillar III risk report of Landsbankinn hf.

 

Nánari upplýsingar veita:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011


Attachments

Pillar III Risk Report 2013.pdf