Reykjaneshöfn – Ársreikningur 2013


Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2013 og fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur af hafnarstjórn 07. mars 2014.

 

      Fjárhags-
  2013 2012 áætlun 2013
       
Rekstrartekjur 219.268.626 180.968.292     351.490.000
Rekstrargjöld 169.211.026 152.579.083     203.578.000
Hagnaður fyrir afskriftir   50.057.600   28.389.209     173.315.000
Rekstrarniðurstaða     4.022.709  (17.857.620)     131.389.000
Tap ársins ( 650.503.476) ( 667.074.903) (510.634.000)
       
Eignir 31.12. 2013 31.12. 2012 áætlun 2013
Fastafjármunir  2.825.105.933  2.706.305.146   2.898.648.000
Veltufjármunir   38.282.223 178.513.242    40.000.000
Eignir  2.863.388.156   2.884.818.388   2.938.648.000
       
Eigið fé og skuldir 31.12. 2013 31.12. 2012 áætlun 2013
       
Eigið fé ( 4.471.542.081) ( 3.851.709.467) ( 4.302.852.000)
       
Langtímaskuldir og skuldbindingar    6.826.486.871    6.341.670.384  6.695.571.000
Skammtímaskuldir       508.443.366       394.857.471     545.929.000
Skuldir 7.334.930.237 6.736.527.855  7.241.500.000
Eigið fé og skuldir  
2.863.388.156
 
2.884.818.388
 2.938.648.000
       
  31.12. 2013 31.12. 2012 áætlun 2013
       
Handbært fé til rekstrar (139.345.125) (202.043.266)   (77.049.000)
Veltufé til rekstrar    (137.829.018)    (286.417.936)  (208.386.000)

 

 

Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga.

Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar.

Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2013 námu 219 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 169 m.kr. og þar af laun 76 m.kr. samkvæmt  ársreikningi.  Hagnaður fyrir afskriftir 50 m.kr.  Afskriftir 46 m.kr. fjármunatekjur og –gjöld  655 mkr. en tap ársins 651 mkr.

Framkvæmdir voru óverulegar á árinu 2013, unnið við gatnagerð, lóðir og fjárfest fyrir 4 m.kr.

 

Framtíðarsýn:

Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 og en reiknað með úthlutun lóða á árinu 2014 m.a. hjá Thorsil ehf. undir kísilverksmiðju. 

Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 270 þúsund tonna álver í áföngum.  Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við hann í  maí 2008.  Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á árinu 2015. 

 

Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.

Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2013 og skuldir sem nema um 7,3 milljörðum króna, mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum.  Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4,5 milljarðar kr. 

Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.  Í þeim áætlunum sem unnið er með gagnvart lánveitendum er gert fyrir að byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2014 og rekstur hefjist í byrjun ársins 2016.

Reykjaneshöfn væntir einnig tekna af starfsemi Brúarfoss hf. sem hyggst hefja framkvæmdir við starfsemi vatnsverksmiðju að Stakkbraut 6 sumarið 2014.

 

Stjórn og framkvæmdastjóri væntir þess, að nýtt hafnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar stuðli að aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmdum og uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í Helguvík.

Jafnframt er Helguvík komin inn á stefnumótandi byggðaáætlun  fyrir árin 2014 – 2017 í tillögu að þingsályktun, sem lögð var fyrir Alþingi 20. desember 2013.

 


Attachments

Ársreikningur Reykjaneshafnar 2013.pdf