Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. hinn 5. febrúar sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 18. mars nk.  kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 14. mars. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 109,568620 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  21. mars 2014 (ávöxtunarkrafa 2,85%).

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

 

   

Hreint verð (e. clean price) er 102,2.

 

 

 


Attachments

Skiptigengi RS33 í gjaldeyrisútb_18.mars.2014.pdf