Niðurstöður aðalfundar Nýherja haldinn 14. mars 2014


Aðalfundur haldinn í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37, 14. mars 2014 kl. 16:00 – 16.45.

 

1.    Formaður stjórnar, Benedikt Jóhannesson setti fundinn.

 

2.    Hann stakk upp á Guðrúnu Ragnarsdóttur sem fundarstjóra og Sverri Ólafssyni sem fundarritara og var það samþykkt.

Fundarstjóri gekk úr skugga um að löglega væri til fundarins boðað og skýrði frá því að mætt væri á aðalfund fyrir 71% hlutafjár. Fundarstjóri lýsti fundinn því lögmætan til að afgreiða þau málefni sem á dagskrá hans eru.

 

3.    Stjórnarformaður tók fyrstur til máls og flutti skýrslu stjórnar félagsins.

Afrit af ræðu stjórnarformanns er varðveitt sem fylgiskjal nr. 1 við fundargerð þessa.

 

4.    Næstur tók til máls Finnur Oddsson, forstjóri félagsins, og skýrði hann reikninga félagsins fyrir árið 2013.

Því næst var orðið gefið laust um reikninga félagsins og skýrslu stjórnar. Enginn kvaddi sér hljóðs.  

Reikningar félagsins voru samþykktir samhljóða.         

 

5.    Næsta mál á dagskrá var ákvörðun um jöfnun taps félagsins. Fundarstjóri bar upp tillögu stjórnar eins og hún kemur fram í áritun á reikninga félagsins en þar segir:  „Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddar út arður til hluthafa árið 2014. Vísað er til ársreikningsins um jöfnun taps og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.“ 

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

6.    Næst bar fundarstjóri undir fundinn tillögu um að laun stjórnarmanna og varamanns þeirra í stjórn Nýherja hf. fyrir árið 2013 yrðu eftirfarandi:

Formaður kr. 375.000. á mánuði

Meðstjórnendur kr. 125.000 á mánuði.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

7.    Fundarstjóri bar upp tillögu um  aðalmenn í aðalstjórn Nýherja hf.:

        Benedikt Jóhannesson formaður kt. 040555-2699

        Hildur Dungal kt. 140571-3859

        Marta Kristín Lárusdóttir kt. 080663-2269

        Ágúst Sindri Karlsson kt. 010863-4149

        Loftur Bjarni Gíslason kt. 120374-3469

Þar sem engin önnur framboð höfðu borist var stjórnin sjálfkjörin.

Fyrir lá tillaga um Guðmund Jóh. Jónsson kt. 041159-2439 í varastjórn Nýherja hf.  Aðrar tillögur komu ekki fram og var hann því sjálfkjörinn.

 

8.    Fundarstjóri bar upp tillögu stjórnar um að endurskoðendur félagsins yrðu KPMG ehf. Fundarstjóri lýsti þá sjálfkjörna til endurskoðunar.

         

9.    Fundarstjóri bar næst upp svohljóðandi tillögu um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum      skv. 55. grein hlutafélagalaga:

Aðalfundur Nýherja haldinn 14. mars 2014 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða dagslokagengi í Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar fellur úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á síðasta aðalfundi félagsins.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

10.   Fundarstjóri bar upp svohljóðandi tillögu um aukningu hlutafjár skv. 15.1. gr. í samþykktum  félagsins:

Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 14. mars 2014 samþykkir svohljóðandi:

      

Stjórn félagsins er heimilt sbr. 41. gr. hlutafélagalaga, að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 150 milljónir með sölu nýrra hluta til nýrra hluthafa. Forgangsréttur hluthafa til hlutafjáraukningarinnar fellur niður sbr. 3. mgr. 34. gr. hlutafélagalaga.

Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar.

Heimild þessa getur stjórn Nýherja hf. nýtt í einu lagi eða áföngum innan þriggja ára frá samþykkt hennar.

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

11.  Fundarstjóri bar upp tillögu um starfskjarastefnu Nýherja hf. skv. 79. grein laga nr. 2/1995 um  hlutafélög (fylgiskjal nr. 2).

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

12.   Undir liðnum „Önnur mál“ þakkaði stjórnarformaður hluthöfum það traust, sem þeir sýndu nýkjörinni stjórn og fundarstjóra fyrir góða fundarstjórn og sleit svo fundi kl. 16:45.


Attachments

Ræða formanns Nýherja hf. 14. mars 2014.pdf Fundargerð aðalfundar Nýherja hf. 14. mars 2014.pdf