Skuldabréf gefin út af Ríkisútvarpinu ohf. (RUV 00 1 og RUV 99 1) hljóta athugunarmerkingu


Skuldabréf gefin út af Ríkisútvarpinu ohf. (RUV 00 1 og RUV 99 1) hafa hlotið athugunarmerkingu með vísan til tilkynningar félagsins sem birt var opinberlega þann 17. mars 2014, þar sem upplýst er um óvissu í tengslum við skilmála lánasamninga útgefanda.

Ákvörðunin er tekin á grundvelli ákvæðis 8.2 í Reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland hf.