Framboð til stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á aðalfundi 20. mars 2014.


Framboðsfrestur til stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. rann út þann 15. mars 2014.  Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í framboði til aðalstjórnar eru (í stafrófsröð):

Andri Þór Guðmundsson forstjóri,
Bjarki Már Baxter lögmaður,
Elín Jónsdóttir lögfræðingur LL.M, ráðgjafi,
Kristín Friðgeirsdóttir verkfræðingur Ph.D., dósent,
Linda Björk Bentsdóttir, lögmaður,
Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur Ph.D, aðalhagfræðingur,
Örvar Kærnested fjárfestir og ráðgjafi.

Til varastjórnar bjóða sig fram (í stafrófsröð):

Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri,
Daði Bjarnason héraðsdómslögmaður,
Helga Kristín Auðunsdóttir lögfræðingur LL.M, sviðstjóri,
Helgi Ingólfur Eysteinsson, viðskiptafræðingur, sjálfstæður ráðgjafi,
Þórunn Pálsdóttir verkfræðingur MBA.

Stjórn félagsins skal eigi síðar en þremur dögum eftir að framboðsfresti lauk meta hvort hver og einn frambjóðandi sé óháður gagnvart félaginu eða hluthöfum sem eiga 10% hlut í félaginu eða meira.  Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur teljast óháðir Tryggingamiðstöðinni hf. og daglegum stjórnendum þess.

Enginn hluthafi ræður yfir 10% af heildarhlutafé eða atkvæðavægi í félaginu, einn eða í samstarfi við tengda aðila, þannig að hann teljist vera stór hluthafi í skilningi laga og félagasamþykkta.  Mat á því hvort frambjóðendur væru óháðir stórum hluthöfum fór því ekki fram.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í meðfylgjandi viðhengi.


Attachments

Aðalfundur TM 2014 - Framboð til stjórnar.docx