Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2013


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2013 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 24. mars 2014.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Tap félagsins á árinu 2013 var 882 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 10.526 þús. kr. skv. ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til fjármagnskostnaðar og lágrar húsaleigu, en þess má geta að tap ársins 2012 nam 7.899 þús. kr. og eigið fé var neikvætt sem nam 15.592 þús. kr. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 25 milljónir.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 437 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 59.058.000 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

 

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

 

 

Sjá lykiltölur í  viðhengi.


Attachments

Jeratún ásreikningur 2013.pdf Fréttatilkynning Jeratúns vegna ársins 2013.pdf