Tryggingamiðstöðin hf. - Endurnýjun samnings um viðskiptavakt.


Tryggingamiðstöðin hf. og MP banki hf. hafa endurnýjað samning um viðskiptavakt.  Samningurinn er efnislega óbreyttur frá fyrri samningi á milli félaganna, en gildistími hans er nú ótímabundinn með gagnkvæmum 14 daga uppsagnarfresti.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða MP banka hf. skal vera að lágmarki 500.000 hlutir á gengi sem MP banki hf. ákveður í hvert skipti.  MP banka hf. er heimilt en ekki skylt að bjóða til kaups og/eða sölu fleiri hluti en að framan greinir.  Verði tilboðum MP banka hf. tekið skal MP banki hf. setja fram annað tilboð innan 10 mínútna frá síðustu viðskiptum.  Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal vera 1,5%.  Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem MP banki hf. er skuldbundinn til að eiga viðskipti skal samsvara 81.000.000 kr. að markaðsvirði.