Útboð ríkisvíxla RIKV 14 0715 og RIKV 14 1015


Föstudaginn 11. apríl kl. 14:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 0715 og RIKV 14 1015 sem eru með gjalddaga 15. júlí og 15. október 2014.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 15. apríl 2014.

Sótt verður um að RIKV 14 1015 verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 16. apríl 2014.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.

 


Attachments

Frett_RIKV_8apr.14 (2).pdf Utbodsskilmalar_RIKV_11 apr.14.pdf