Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur
að  hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði.  Útboðinu var þannig háttað að boðið
var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,95% flötum vöxtum (verð: 97,0642).

Tilboðum  var tekið að fjárhæð 840.000.000. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru
útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 7,88 ma. kr.

Bréfin  voru seld  til breiðs  hóps fjárfesta.  Stefnt er  að töku  víxlanna til
viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. apríl næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1775711]