Ársreikningar Akureyrarbæjar 2013

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og varð rekstrarafgangur umfram áætlanir. Skuldir lækkuðu um 950 milljónir króna. Ársreikningar fyrir árið 2013 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 15. apríl og 6. maí nk.


Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Fráveita Akureyrarbæjar,  Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

 

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og er heildarniðurstaða ársins í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var jákvæð um 950 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 534 milljóna króna rekstarafgangi á árinu. Fráveita Akureyrar var færð til Norðuorku Hf í árslok. Það myndaði 1.491 millj. króna söluhagnað í A-hluta, en hafði engin áhrif rekstur samstæðunnar. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.518,3 millj. kr. sem er 75 millj. kr. minna en áætlun hafði gert ráð fyrir og 363 millj. kr. hærri en árið áður.  Handbært fé frá rekstri nam 2.581,6 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.567,5 millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 1.470 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 1.630 millj. kr. en ný langtímalán námu 159 millj. kr. Lækkun á handbæru fé á árinu nam 455,8 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 1.832,6 millj. kr.

 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 7.777.260 þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.556. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 52,4%. Annar rekstrarkostnaður var 30,0% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 565 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.037 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2012 voru skatttekjurnar 525 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 969 þús kr.

 

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 38.875,4 millj. kr., þar af eru veltufjármunir 3.995,6 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 23.346,6 millj. kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.341millj. kr. Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 112% en var 124% árið áður.

 

Veltufjárhlutfallið er 1,20 í árslok en var 1,28 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 15.528,8 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall er 40,0% af heildarfjármagni en var 37% árið áður.

 

 

 

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Akureyrarbær ársreikningur árið 2013 með undirritun bæjarráðs.pdf