This is a correction of the announcement from 12:05 14.04.2014 GMT. Reason for the correction: Tilvísanir í "lýsingu" í fyrirsögn og texta var breytt í "útgáfulýsingu". Íslandsbanki er útgefandi skuldabréfa með auðkennið ISLA CB 16 samkvæmt endanlegum skilmálum dagsettum 18. október 2013. Komið hefur í ljós að skilmálar skuldabréfanna eru rangt tilgreindir í útgáfulýsingu skuldabréfanna, dags. 17. október 2013, og því rangt skráðir í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands. Þar er skilmálum skuldabréfanna lýst þannig í kafla 2.2 að fjöldi gjalddaga séu tveir á ári, 22. apríl og 22. október fram að lokagjalddaga 22. október 2016. Í endanlegum skilmálum útgáfunnar (Final Terms), dags. 18. október 2013, kemur fram að bréfin skuli greiðast að öllu leyti á lokagjalddaga, þann 22. október 2016. Íslandsbanki mun fara þess á leit við eigendur skuldabréfanna að þeir samþykki breytingu á skilmálum skuldabréfanna í útgáfulýsingu útgáfunnar í kerfi Verðbréfaskráningar þannig að þar komi fram að engar afborganir greiðist af skuldabréfunum fyrr en á lokagjalddaga 22. október 2016. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1777201]
CORRECTION: Islandsbanki hf. : Leiðrétting á útgáfulýsingu skuldabréfa, ISLA CB 16, í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands
| Source: Íslandsbanki hf.