NASDAQ OMX ICELAND BÝÐUR HB GRANDA VELKOMIÐ Á AÐALMARKAÐINN


Reykjavík, 25. apríl, 2014 -  NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) tilkynnir að í dag hefjast viðskipti með hlutabréf HB Granda hf. (HB Grandi) á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland. HB Grandi tilheyrir Neysluvörugeiranum og flokkast sem miðlungsstórt félag (e. Mid Cap). HB Grandi er áttunda félagið sem skráð er á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Nordic (NASDAQ OMX Stockholm, Copenhagen, Helsinki, Iceland) á árinu og annað félagið á NASDAQ OMX Iceland. Viðskipti með félagið verða undir auðkenninu GRND.

HB Grandi er eitt stærsta sjávarútvegsfélag landsins. Fyrirtækið framleiðir gæðavöru úr fersku hráefni sem aflað er úr hafinu við Ísland. Félagið gerir út tíu fiskiskip og vinnur fiskafurðir bæði á sjó og í landi, á þremur stöðum víðsvegar um Ísland. Félagið hefur mestu aflaheimildir íslenskra útgerðarfélaga og rekur eigin markaðsdeild sem selur afurðirnar um allan heim; aðallega í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Fjöldi starfsmanna hjá HB Granda er um 900.

„Þetta eru spennandi tímar í sögu HB Granda.“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. „Skráningin hefur gert okkur kleift að ná markmiði okkar um dreifðara eignarhald og við erum afskaplega ánægð með niðurstöður hlutafjárútboðsins. HB Grandi er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og við erum stolt af því að geta boðið Íslendingum upp á tækifæri til að taka þátt í framtíðarverkefnum með okkur.“

„Skráning HB Granda á Aðalmarkaðinn markar tímamót á margan hátt.” sagði Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland. „Félagið er það fyrsta á Íslandi sem færir sig frá First North yfir á Aðalmarkaðinn, en ekki síst, þá er HB Grandi fyrsta sjávarútvegsfélagið í mörg ár sem kemur á markað. Það er mjög mikilvægt að ein af undirstöðuatvinnugreinum landsins sé á markaði, þannig að bæði stærri og smærri fjárfestum séu veitt tækifæri til að fjárfesta í henni. Við bjóðum HB Granda velkomið og við hlökkum til að styðja við félagið á nýrri vegferð þess sem skráð félag.”

Arion banki var umsjónaraðili með skráningunni og mun einnig sjá um viðskiptavakt með bréf félagsins.  

 

#

Um NASDAQ OMX Group

NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 80 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,200 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8 billjón Bandaríkjdala og yfir 10.000 viðskiptavina að fyrirtækjaþjónustu. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um skuldabréfavörur sem átt er viðskipti með á NFX og afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

         Fjölmiðlasamskipti:
         Kristín Jóhannsdóttir
         525 2844/868 9836
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com

HB Grandi tower shot MarketSite

Attachments

2014_0425_HB Grandi listing_Icelandic.pdf