Kópavogsbæ stefnt


Kópavogsbæ hefur verið birt stefna af hálfu hluta erfingja Sigurðar K. Hjaltested fyrrum ábúenda á Vatnsenda. Er aðalkrafa stefnenda sú að Kópavogsbær greiði þeim kr. 74.811.389.954 vegna eignarnáms á landi í Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Fjárhæð varakröfu er kr. 47.558.500.000. Málið verður þingfest 5. nóvember 2014. Kópavogsbær mun taka til varna í málinu og telur að stefnendur eigi enga kröfu á hendur bænum.

Þær kröfur sem stefnendur setja fram í stefnu hafa ekki verið kynntar áður fyrir Kópavogsbæ.

Ágreiningur aðila snýst m.a. um það hvort Kópavogsbæ hafi verið heimilt að ráðstafa eignarnámsbótum árin 1992, 1998, 2000 og 2007 til þáverandi þinglýstra eigenda Vatnsenda. Eignarnámin fóru fram á grundvelli heimildar frá opinberum stofnunum og ráðherra.