Reykjavík, 2014-04-29 15:20 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur, sem haldinn var 25. apríl 2014, undirrituðu fulltrúar sveitarfélaganna þriggja sem eiga Orkuveituna – Reykjavíkurborgar (93,539%), Akraneskaupstaðar (5,528%) og Borgarbyggðar 0,933%) – nýjan sameignarsamning fyrir fyrirtækið. Jafnframt var undirrituð eigendastefna fyrir Orkuveitu Reykjavíkur með lítilsháttar breytingum frá eigendastefnu sem samþykkt var vorið 2012. Sameignarsamningurinn byggir á nýjum lögum um Orkuveitu Reykjavíkur, sem gengu í gildi 1. janúar 2014. Skjölin tvö höfðu hlotið einróma samþykki í öllum sveitarstjórnum eigenda.
Lög nr. 136/2013 um Orkuveitu Reykjavíkur leystu af hólmi eldri lög og var nokkrum ákvæðum þeirra breytt í samráði við eigendur fyrirtækisins. Með breytingu á lögum, sameignarsamningi og eigendastefnu bregðast eigendur við gagnrýni og ábendingum, sem fram komu í úttekt á vegum eigenda og gefin var út í ýtarlegri skýrslu í október 2012. Á meðal þess sem kveðið er á um er að;
- Hlutverk fyrirtækisins er skýrt. Hefðbundin veituþjónusta er meginhlutverk þess og öll frávik frá því komi til kasta eigenda.
- Með einföldun laga eru stjórnhættir fyrirtækisins í auknu mæli færðir til eigenda.
- Í sameignarsamningi eru hlutverkaskipti eigenda, stjórnar og stjórnenda skýrð.
- Eigendur skilgreina kröfu um arðsemi rekstursins, arðgreiðslur og viðmið í þeim efnum.
- Sú krafa er gerð að arðsemi verð tengd áhættu og fjármögnun einstakra rekstrarþátta.
- Gerð er krafa um að stjórn fyrirtækisins vísi óvenjulegum, veigamiklum eða stefnumarkandi ákvörðunum til eigenda.
- Ákvarðanir um nýjar virkjanir og framkvæmdir á óröskuðum svæðum skulu í öllum tilvikum bornar undir eigendur.
Af hálfu eigenda Orkuveitu Reykjavíkur var unnið að breytingunum á vettvangi eigendanefndar, sem skipuð var með erindisbréfi árið 2010. Nefndin hefur nú lokið störfum.
Sameignarsamningur og eigendastefna Orkuveitu Reykjavíkur eru í viðhengjum.