Tryggingamiðstöðin hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014 birt þann 14. maí


TM mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 eftir lokun markaða miðvikudaginn 14. maí næst komandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi kl. 8:30 fimmtudaginn 15. maí. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað að við upphaf kynningarfundar.