Reitun hefur uppfært lánshæfismat á Arion banka hf.


Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er i.A3 með stöðugum horfum. Lánshæfismatið hefur því hækkað úr i.BBB1 með jákvæðum horfum. Lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa bankans er i.AA2, með stöðugum horfum, sem er óbreytt frá fyrra ári.

Í greiningu Reitunar kemur fram að úrvinnsla vandræðalána hafi gengið samkvæmt áætlun og gæði lánasafnsins hafi aukist til muna auk þess sem hlutfall íbúðarlána í lánasafni hafi aukist og veðstaða batnað samhliða hækkandi fasteignaverði.

Matið byggir á háu eiginfjárhlutfalli bankans, háu lausafjárhlutfalli og sterkri markaðsstöðu ásamt líklegum utanaðkomandi stuðningi Seðlabankans ef til þess kæmi. Jafnframt er minnkandi óvissa tengd gæðum eigna bankans og afskriftarþörf fer minnkandi. Efnahagshorfur eru ágætar og framtíðarhorfur bankans eru góðar.

Horfur eru á því að lánshæfi bankans gæti batnað enn frekar með auknum gæðum útlánasafnsins, minni samþjöppun og auknum stöðugleika í rekstri og umhverfi.


Nánari upplýsingar veitir Bára Mjöll Þórðardóttir, fjárfestatengill Arion banka, bara.thordardottir@arionbanki.is, s: 856 7159.

 

 


Attachments

Arion Sértryggð lánshæfismat maí 2014.pdf Arion banki lánshæfismat maí 2014.pdf