Sjóvá; Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014 verður birt 27. maí


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 27. maí.

Sjóvá býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2014 kl. 16:00 þriðjudaginn 27. maí í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri félagsins mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef félagsins www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst.