N1 hf : Afkoma á fyrsta ársfjórðungi 2014


Afkoma N1 hf. á fyrsta ársfjórðungi 2014

Helstu niðurstöður

  • Rekstrartekjur voru 11.325 m.kr. samanborið við 12.783 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2013.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 120 m.kr. (1F2013: 279 m.kr.).
  • Heildartap á fyrsta ársfjórðungi nam 86 m.kr. (1F2013: 22 m.kr. heildarhagnaður).
  • Minni umsvif í sjávarútvegi en á fyrsta ársfjórðungi 2013, einkum vegna lakari loðnuvertíðar.
  • Eiginfjárhlutfall var 49,6% eftir 1.650 m.kr. arðgreiðslu sem samþykkt var á aðalfundi 27. mars 2014 og greidd út til hluthafa 28. apríl 2014.
  • Handbært fé frá rekstri var 314 m.kr. (1F2013: 419 m.kr.).
  • Framlegð af vörusölu skiptist þannig að um 53% er vegna sölu á eldsneyti en 47% vegna sölu annarra vara en var 57% vegna sölu á eldsneyti og 43% vegna sölu annarra vara á fyrsta ársfjórðungi 2013.
  • Meðalfjöldi stöðugilda var 522 á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 542 á fyrsta ársfjórðungi 2013.
  • Veltuhraði birgða var rúmlega 10 á fyrsta ársfjórðungi samanborið við tæplega 8 á fyrsta ársfjórðungi 2013.

Reksturinn á fyrsta ársfjórðungi 2014

Rekstur félagsins var undir áætlun á fyrsta ársfjórðungi sem skýrist að mestu vegna minni umsvifa í sjávarútvegi og á einstaklingsmarkaði. Selt magn af eldsneyti til sjávarútvegs var 14,5% minna en á fyrsta ársfjórðungi 2013 sem má að stærstum hluta rekja til lakari loðnuvertíðar. Einnig hafði þróun USD/ISK neikvæð áhrif á framlegð félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2014.

Áætluð EBITDA 2.600 m.kr. á árinu

Á aðalfundi félagins 27. mars 2014 kom fram að EBITDA spá félagsins fyrir árið 2014 væri 2.600 m.kr. Þrátt fyrir að uppgjör fyrsta ársfjórðungs sé undir áætlun þá breytir það ekki EBITDA spá félagsins.

Atburðir eftir lok reikningsskiladags

Í maí tók félagið kauptilboði í fasteignina að Ægisíðu 102 og er áætlaður söluhagnaður að lágmarki 260 m.kr. Áætlað er að starfsemi að Ægisíðu verði hætt á haustmánuðum þegar gengið hefur verið frá kaupsamningi en ekki er talið að lokunin muni hafa veruleg áhrif á EBITDA félagsins.

Nánari upplýsingar veita Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri, (e@n1.is) og Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, (eggert@n1.is).


Attachments

N1 hf - Afkoma á fyrsta ársfjórðungi 2014 N1 hf - Árshlutareikningur Q1 2014 N1 hf. Fjárfestakynning Q1 2014