Félagar í Flugvirkjafélagi Íslands (FVFÍ) er starfa hjá Icelandair ehf. hafa boðað til verkfalls á eftirtöldum tímum:
- Frá kl. 06:00 þann 16. júní 2014 til 06:00 þann 17. júní 2014.
- Ótímabundin frá kl. 06:00 þann 19. júní 2014.
Náist ekki samkomulag milli Icelandair og FVFÍ mun flugáætlun Icelandair raskast vegna aðgerðanna. Óvíst er hvaða áhrif þær muni hafa á afkomu Icelandair Group hf.
Frekari upplýsingar:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801