Í maí flutti félagið 219 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 14% fleiri en í maí á síðasta ári. Framboðsaukning í sætiskílómetrum nam 18%. Sætanýting var 77,1% og dróst saman um 1,6 prósentustig á milli ára. Fella þurfti niður 92 flug og breyta um 12 þúsund bókunum vegna aðgerða flugmanna í mánuðinum.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í maí sem er fækkun um 5% á milli ára. Framboð félagsins í maí var dregið saman um 5% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 70,8% og dróst saman um 0,7 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 38% á milli ára. Fraktflutningar í áætlunarflugi drógust saman um 5% frá því á síðasta ári, má rekja það til aðgerða flugmanna. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 12% miðað við maí 2013. Herbergjanýting var 80,1% en hún nam 72,1% í maí í fyrra.
MILLILANDAFLUG | MAÍ 14 | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 218.743 | 192.434 | 14% | 794.917 | 698.510 | 14% |
Sætanýting | 77,1% | 78,7% | -1,6 %-stig | 76,2% | 75,8% | 0,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 849,1 | 717,3 | 18% | 3.085,9 | 2.650,6 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | MAÍ 14 | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 23.909 | 25.184 | -5% | 111.450 | 121.260 | -8% |
Sætanýting | 70,8% | 70,1% | 0,7 %-stig | 70,3% | 70,4% | -0,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 10,7 | 11,3 | -5% | 50,8 | 55,0 | -8% |
LEIGUFLUG | MAÍ 14 | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 88,9% | 100,0% | -11,1 %-stig | 97,9% | 87,1% | 10,8 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.486 | 2.400 | -38% | 9.067 | 12.009 | -25% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAÍ 14 | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 19.471 | 17.418 | 12% | 78.662 | 72.231 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.460 | 8.950 | -5% | 40.974 | 39.074 | 5% |
HÓTEL | MAÍ 14 | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 14 | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 23.485 | 23.264 | 1% | 112.224 | 112.064 | 0% |
Seldar gistinætur | 18.817 | 16.775 | 12% | 78.965 | 73.514 | 7% |
Herbergjanýting | 80,1% | 72,1% | 8,0 %-stig | 70,4% | 65,6% | 4,8 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010