Í tilkynningu frá því áðan var villa í hlutfallstölu eigin bréfa félagsins. Standa átti að VÍS ætti nú 0,039% af heildarhlutafé félagsins en ekki 0,39%. Hefur það verið leiðrétt í tilkynningunni hér fyrir neðan.
Í 23. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 688.679 eigin hluti fyrir kr. 6.328.960 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu VÍS eftir viðskipti |
5.6.2014 | 15:48 | 688.679 | 9,19 | 6.328.960 | 965.203 |
Samtals | 688.679 | 6.328.960 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann 16. maí 2014. | |||||
VÍS hefur nú keypt samtals 688.679 hluti í félaginu sem samsvarar um 1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 688.679. VÍS á nú samtals 0,039% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 nema kaupum samkvæmt áætluninni sé lokið fyrir þann tíma. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, í síma 560-5000 eða í gegnum fjarfestatengsl@vis.is.