Haukur F. Leósson, varaformaður stjórnar Íbúðalánasjóðs, hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs af persónulegum ástæðum. Einnig hefur Magrét Rósa Sigurðardóttir beðist lausnar sem varamaður í stjórn Íbúðalánasjóðs.
Félags- og húsnæðismálaráðherra mun skipa nýja aðila í stað þeirra í stjórn sjóðsins eins fljótt og unnt er.