Islandsbanki hf. : Útgáfa sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum verðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa. Engum tilboðum var tekið í ISLA CBI 24.  Nýr sex ára
flokkur, ISLA CBI 20, var boðinn út og seldust þar á 960.000.000 kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,50%.

Alls hefur Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að
upphæð 28,33 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.  Heildareftirspurnin í útboðinu
var 2,63ma. kr., en 36,5% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 23. júní næstkomandi. Viðskiptavakt
fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1792688]