Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. hinn 15. maí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 24. júní nk.  kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 20. júní. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 105,976296 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  27. júní 2014 (ávöxtunarkrafa 3,20%).

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

 

 

Hreint verð (e. clean price) er 97,21.

 

 

 


Attachments

Skiptigengi RS33 í gjaldeyrisútb_24.jun.2014.pdf