Í 26 viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 37.735 eigin hluti fyrir kr. 326.408 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
24.6.2014 | 15:29 | 37.735 | 8,65 | 326.408 | 8.491.638 |
Samtals | 37.735 | 326.408 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. | |||||
Vís hefur nú keypt samtals 8.215.114 hluti í félaginu sem samsvarar um 15% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 73.928.541. Vís á nú samtals um 0,34% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |