VIÐSKIPTAYFIRLIT JÚNÍ 2014 - NASDAQ OMX ICELAND


Reykjavík, 1. júlí, 2014 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir júní eru eftirfarandi:    

·       Viðskipti með hlutabréf í júnímánuði námu 24.979 milljónum eða 1.315 milljónum á dag. Það er 18% hækkun frá fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti með hlutabréf 1.118 milljónum á dag. Þetta er 63% hækkun á milli ára (viðskipti í júní 2013 námu 806 milljónum á dag).          

·       Mest voru viðskipti með hlutabréf HB Granda (GRND), 4.833 milljónir, N1 (N1) 4.114 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR) 3.939 milljónir, VÍS (VIS), 2.884 milljónir, og Marel (MARL), 2.372 milljónir.

·       Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 2,2% milli mánaða og stendur nú í 1.136 stigum.

·       Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina 30,9% (29,8% á árinu), Landsbankinn með 27,3% (24,1% á árinu), og Íslandsbanki með 23,5% (20,6% á árinu).

·       Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í júnímánuði námu 13,0 milljónum, samanborið við 62,0 milljónir í maí. 

Í lok júní voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 592 milljörðum króna (samanborið við 471 milljarð í júní 2013).

·       Viðskipti með skuldabréf námu 122 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 6,4 milljarða veltu á dag. Þetta er 39% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 4,6 milljörðum á dag) og 10% lækkun á  milli ára (viðskipti í júní 2013 námu 7,2 milljörðum á dag).

·       Alls námu viðskipti með ríkisbréf 108,5 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 11,6 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 23,6 milljarðar, RIKB 22 1026, 16,8 milljarðar, RIKB 20 0205, 15,7 milljarðar og RIKB 25 0612, 14,7 milljarðar.

·       Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 25,0% (19,5% á árinu), MP banki með 21,5% (20,2% á árinu) og Arion banki með 18,5% (17,6% á árinu).

·       Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 1,60% í júní og stendur í 1.026,0 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 1,59% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 1,28%. 

Meiri tölfræði og tölfræðiáskrift: http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um NASDAQ OMX Group

NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjdala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur 

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja. 

         Fjölmiðlasamskipti:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
         Sími: 525 2844


Attachments

2014_0701_Viðskiptayfirlit júní 2014.pdf