Samið við Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ)


Icelandair Group og Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) skrifuðu í gærkvöldi undir kjarasamning sem gildir til 31. ágúst 2017. Kjarasamningurinn er í meginatriðum í takt við þá samninga sem gerðir hafa verið á vinnumarkaði á Íslandi á árinu. Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FVFÍ.

Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri 

bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála 
bogi@icelandairgroup.is
665 8801