Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 27. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.000.000 eigin hluti fyrir 24,8 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
2.7.2014 11:34 500.000 24,90 12.450.000 6.500.000
2.7.2014 14:56 500.000 24,70 12.350.000 7.000.000
Samtals   1.000.000   24.800.000  

                       

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.

TM hefur nú keypt samtals 7.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 33,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 188,1 milljónum króna. TM á nú samtals 0,92% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is