Lækkun hlutafjár í Högum hf.


Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Högum hf. að nafnverði kr. 46.083.650 en á aðalfundi félagsins þann 5. júní sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins sem nemur eigin hlutafé og því þannig eytt.

Skráð hlutafé Haga hf. eftir lækkunina er að nafnvirði kr. 1.171.502.190 en var fyrir lækkunina kr. 1.217.585.840 að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eftir hlutafjárlækkunina á félagið engin bréf í sjálfu sér.