Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 5,90% flötum vöxtum (verð: 97,3670) og 6 mánaða víxillinn á 5,95% flötum vöxtum (verð: 97,0175). Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 260 milljónir króna að nafnvirði og að fjárhæð 460 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 6,92 ma. kr. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 17. júlí næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1820171]