Í 28. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 2.250.000 eigin hluti fyrir kr. 18.877.500 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
7.7.2014 | 09:30 | 1.500.000 | 8,41 | 12.615.000 | 15.079.638 |
7.7.2014 | 12:49 | 750.000 | 8,35 | 6.262.500 | 15.829.638 |
Samtals | 2.250.000 | 18.877.500 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. | |||||
Vís hefur nú keypt samtals 15.553.114 hluti í félaginu sem samsvarar 28% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 136.347.981. Vís á nú samtals 0,63% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |