Reglubundin tilkynning um kaup Vís á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


 

Í 28. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 2.250.000 eigin hluti fyrir kr. 18.877.500 eins og hér segir:
           
Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Vís eftir viðskipti
7.7.2014 09:30 1.500.000 8,41 12.615.000 15.079.638
7.7.2014 12:49 750.000 8,35 6.262.500 15.829.638
           
Samtals   2.250.000   18.877.500  
           
           
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014.
Vís hefur nú keypt samtals 15.553.114 hluti í félaginu sem samsvarar 28% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 136.347.981. Vís á nú samtals 0,63% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.