Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 28. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.019.389 eigin hluti fyrir 24,4 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
7.7.2014 9:40 500.000 24,05 12.025.000 7.500.000
7.7.2014 11:23 500.000 23,90 11.950.000 8.000.000
9.7.2014 15:15 9.924 24,30 241.153 8.009.924
11.7.2014 9:57 9.465 24,35 230.473 8.019.389
Samtals   1.019.389   24.446.626  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.

TM hefur nú keypt samtals 8.019.389 hluti í félaginu sem samsvarar 38,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 212,5 milljónum króna. TM á nú samtals 1,05% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is