VIÐSKIPTAYFIRLIT JÚLÍ 2014 - NASDAQ OMX ICELAND


Reykjavík, 1. ágúst, 2014 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir júlí eru eftirfarandi:    

  • Viðskipti með hlutabréf í júlímánuði námu 13.897 milljónum eða 604 milljónum á dag. Það er 54% lækkun frá fyrri mánuði, en í júní námu viðskipti með hlutabréf 1.315 milljónum á dag. Þetta er 15% hækkun á milli ára (viðskipti í júlí 2013 námu 527 milljónum á dag).          
  • Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR), 2.935 milljónir, Haga (HAGA), 1.822 milljónir, Sjóvá-Almennra trygginga (SJOVA), 1.450 milljónir, HB Granda (GRND), 1.337 milljónir, og Eimskipafélags Íslands (EIM), 1.198 milljónir.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 0,7% milli mánaða og stendur nú í 1.143 stigum.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 35,6% (21,9% á árinu), Arion banki með 17,9% (28,7% á árinu), og MP banki með 14,7% (12,0% á árinu).
  • Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í júlímánuði námu 9,6 milljónum, samanborið við 13,0 milljónir í júní. 

 

Í lok júlí voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 608 milljörðum króna (samanborið við 488 milljarða í júlí 2013).

  • Viðskipti með skuldabréf námu 44 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 1,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 70% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní námu 6,4 milljörðum á dag), og 55% lækkun á  milli ára (viðskipti í júlí 2013 námu 4,3 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 35,3 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 7,7 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 8,2 milljarðar, RIKB 25 0612, 6,3 milljarðar, RIKB 22 1026, 5,3 milljarðar, RIKB 20 0205, 5,1 milljarður og HFF150224 3,7 milljarðar.
  • Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 24,7% (20,9% á árinu), MP banki með 23,9% (20,4% á árinu) og Íslandsbanki með 15,5% (19,3% á árinu).
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,58% í júlí og stendur í 1.032,0 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,88% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,38%. 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá:

 http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um NASDAQ OMX Group

NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjdala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI:
         Magnús Harðarson
         525 2853
         magnus.hardarson@nasdaqomx.com


Attachments

2014_0801_Viðskiptayfirlit júlí 2014.pdf