Flutningatölur júlí 2014


Í júlí flutti félagið 355 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 16% fleiri en í júlí á síðasta ári.  Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins, og þetta er í fyrsta sinn sem félagið flytur í einum mánuði fleiri farþega en sem nemur íbúatölu Íslands. Framboðsaukning á milli ára nam 19% og sætanýting var 85,9% samanborið við 86,1% á sama tíma í fyrra.  

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 32 þúsund í júlí. Framboð félagsins í júlí var aukið um 4% samanborið við júlí 2013. Sætanýting nam 72,2% og dróst saman um 1,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 26% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins var svipaður á milli ára. Herbergjanýting var 89,1% samanborið við 89,2% í júlí í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG JÚL 14 JÚL 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 355.046 306.206 16% 1.458.087 1.273.320 15%
Sætanýting 85,9% 86,1% -0,2 %-stig 79,7% 79,4% 0,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.225,3 1.033,2 19% 5.429,5 4.647,6 17%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JÚL 14 JÚL 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 32.370 32.493 -0.4% 171.019 181.724 -6%
Sætanýting 72,2% 73,7% -1,5 %-stig 70,6% 71,2% -0,6 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 21,1 20,2 4% 86,5 90,1 -4%
             
LEIGUFLUG JÚL 14 JÚL 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 90,6% 100,0% -9,4 %-stig 95,7% 90,4% 5,3 %-stig
Seldir blokktímar 1.796 2.423 -26% 12.460 16.589 -25%
             
FRAKTFLUTNINGAR JÚL 14 JÚL 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 24.456 21.538 14% 125.653 113.973 10%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.116 7.422 9% 57.103 54.352 5%
             
HÓTEL JÚL 14 JÚL 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 41.540 41.416 0,3% 189.793 189.032 0,4%
Seldar gistinætur 37.023 36.923 0,3% 144.023 136.587 5%
Herbergjanýting 89,1% 89,2% -0,1 %-stig 75,9% 72,3% 3,6 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 8407010