Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Leiðrétting.


Í ljós hefur komið að í tilkynningu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 21. júlí 2014 um kaup á eigin bréfum í 29. viku 2014 reyndist villa í tilgreiningu viðskiptaverðs og þar með kaupverðs vegna síðari viðskipta sem fram fóru 15.7.2014.  Er nú tilkynningin birt að nýju, leiðrétt, eins og hér greinir:

Í 29. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 980.611 eigin hluti fyrir 23,7 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
15.7.2014 13:49 500.000 24,35 12.175.000 8.519.389
15.7.2014 14:56 480.611 24,00 11.534.664 9.000.000
Samtals   980.611   23.709.664  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.

TM hefur nú keypt samtals 9.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 42,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 236,3 milljónum króna. TM á nú samtals 1,18% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is