Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2014 verður birt 25. ágúst


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör annars ársfjórðungs 2014 eftir lokun markaða mánudaginn 25. ágúst.

Sjóvá býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2014 kl. 8.30 þriðjudaginn 26. ágúst í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri félagsins mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef félagsins www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst.