Islandsbanki hf. : Annað árshlutauppgjör 2014 birt þann 22. ágúst


Íslandsbanki mun birta annað árshlutauppgjör 2014 fyrir opnun markaða
föstudaginn 22. ágúst 2014.

Síðar þann dag , föstudaginn 22. ágúst kl. 11.30, munu Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu
bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á
íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi.  Boðið verður upp
á veitingar.

Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi.

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1849150]