Íslandsbanki mun birta annað árshlutauppgjör 2014 fyrir opnun markaða föstudaginn 22. ágúst 2014. Síðar þann dag , föstudaginn 22. ágúst kl. 11.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Boðið verður upp á veitingar. Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi. Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla, www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1849150]