Batnandi afkoma Farice fyrri hluta árs 2014.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) jókst um 10,4% frá sama tíma á fyrra ári og nam 3.6 milljónum evra. Heildartekjur námu 6,6 milljónum evra og jukust um 8,7% frá fyrra ári. Heildarkostnaður jókst um 6,6%. Eiginfjárhlutfall var 43,4% 30.júní s.l.
Fjármagnskostnaður var 2,9 milljónir evra, þar af er 1,1 milljón evra reiknaður gengismunur vegna styrkingar íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í íslenskum krónum. Afskriftir námu 3,7 milljónum evra. Tap félagsins varð 2,9 milljónir evra og minnkaði um 1,6 milljónir evra.
Frekari upplýsingar:
Ómar Benediktsson 585 9701