VÍS: Birting uppgjörs fyrir fyrstu sex mánuði ársins þann 26. ágúst og kynningarfundur um uppgjörið 27. ágúst n.k.


  

Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2014, þriðjudaginn 26. ágúst næstkomandi eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrri árshelmingi 2014 verður haldinn morguninn eftir, þann 27. ágúst, í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Léttur morgunverður frá 08:15.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins:

http://vis.is/fjarfestar