TM mun birta árshlutauppgjör fyrri árshelmings 2014 eftir lokun markaða fimmtudaginn 28. ágúst næst komandi.
TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrri árshelmingi kl. 8:30 föstudaginn 29. ágúst. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.
Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar en fundurinn verður einnig aðgengilegur í gegnum fjarfundabúnað.