Stjórn HS Veitna hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning félagsins vegna fyrstu sex mánuði ársins 2014.
Helstu atriði
Hagnaðaraukning um 35 m.kr. milli tímabila
Heildarhagnaður á fyrri hluta ársins 2014 var 351 m.kr. á móti hagnaði á sama tímabili árið 2013 upp á 316 m.kr.
EBITDA lækkar milli tímabila, EBITDA á fyrri helmingi 2014 var 849 m.kr. (33%) á móti 895 m.kr. (36%). á sama tímabili árið 2013.
Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall þann 30. júní 2014 er 52,2%.
Veltufjárhlutfall var 3,71 þann 30. júní 2013 samanborið við 4,63 í árslok 2013.
Hluthafar félagsins eru fjórir, í lok júní áttu þrír hluthafa yfir 10% hlut í félaginu:
Reykjanesbær 50,1%
HSV Eignarhaldsfélag slhf 34,28%
Hafnarfjarðarbær 15,42%
Fréttatilkynningu má sjá í heild sinni í meðfylgjandi skjali og einnig árshlutareikning félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna hf. í síma 422 5200/860 5208