Skuldabréf útgefin af Veðskuldabréfasjóðnum Virðingu hljóta athugunarmerkingu


Skuldabréf útgefin af Veðskuldabréfasjóðnum Virðingu (VEDS1 14 01) hafa hlotið athugunarmerkingu með vísan til tilkynningar útgefanda sem birt var opinberlega þann 22. ágúst 2014, þar sem upplýst var um að hrein eign sjóðsins væri neikvæð.

Ákvörðunin er tekin á grundvelli ákvæðis 8.2 í Reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland hf.