Í 34. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 3.750.000 eigin hluti fyrir kr. 31.035.000 eins og hér segir: | |||||
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Vís eftir viðskipti |
18.8.2014 | 14:49 | 2.250.000 | 8,26 | 18.585.000 | 24.079.638 |
22.8.2014 | 11:28 | 1.500.000 | 8,30 | 12.450.000 | 25.579.638 |
Samtals | 3.750.000 | 31.035.000 | |||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. | |||||
Vís hefur nú keypt samtals 25.303.114 hluti í félaginu sem samsvarar 46% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 217.677.981. Vís á nú samtals 1,02% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. | |||||
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |