Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör


Afkoma á fyrri árshelmingi 2014

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrri helming ársins 2014 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. ágúst 2014. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður

  • 451 m.kr. hagnaður varð af rekstri félagsins á fyrri helmingi ársins samanborið við 1.094 m.kr. hagnað á sama tímabili árið 2013.
  • Iðgjöld tímabilsins námu 7.781 m.kr. samanborið við 7.971m.kr. á sama tímabili árið 2013.
  • Framlegð af vátryggingarekstri var 94 m.kr. samanborið við 221m.kr. á fyrri helmingi ársins 2013. 
  • Samsett hlutfall var 99,9% samanborið við 98,2% á sama tímabili 2013.
  • Fjármunatekjur námu 663 m.kr. samanborið við 1.374 m.kr. á fyrri helmingi 2013.
  • Heildareignir í lok júní námu 47.538 m.kr. samanborið við 46.254 m.kr. í árslok 2013.
  • Fjárfestingaeignir félagsins námu 35.015 m.kr. samanborið við 36.581 m.kr. í árslok 2013.
  • Eigið fé félagsins nam 15.170 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 16.624 m.kr. í árslok 2013.
  • Arðsemi eigin fjár var 5,7% á ársgrunni samanborið við 14,6% arðsemi á sama tímabili árið 2013.
  • Eiginfjárhlutfall var 31,9% í lok tímabilsins.
  • Gjaldþolshlutfall samstæðunnar var 3,85 í lok júní og hefur hækkað úr 3,74 frá áramótum.
  • Á fyrri helmingi ársins greiddi félagið 1.831 m.kr. í arð til hluthafa og  keypti eigin bréf að nafnverði 8 m.kr. fyrir um 74 m.kr.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Rekstur félagsins gekk ágætlega á öðrum ársfjórðungi ársins.  Iðgjaldatekjur jukust frá fyrsta fjórðungi og voru litlu minni en á sama fjórðungi í fyrra.  Tjónaþunginn var nokkuð minni en á fyrsta fjórðungi og var samsett hlutfall 96,9%.  Á fyrri árshelmingi var samsett hlutfall 99,9% sem er heldur hærra en á sama tímabili 2013 þegar hlufallið var 98,2%.   Þróun á fjármálamörkuðum á tímabilinu leiðir af sér að ávöxtun af fjárfestingasafni félagsins á fyrri helmingi ársins var nokkuð undir væntingum stjórnenda og verulega lakari en á sama tímabili 2013. Þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður námu fjármunatekjur á öðrum ársfjórðungi 492 milljónum króna.  Áherslur stjórnenda á að einfalda starfsemina og auka skilvirkni í rekstri hafa skilað sér í því að rekstrarkostnaður á fyrri helmingi ársins er nánast sá sami og hann var á fyrri helmingi ársins 2013.

Stefna VÍS er að bæta þjónustu við viðskiptavini og auka ánægju þeirra enn frekar.  Hluti af því er að auðvelda þeim að eiga viðskipti við félagið.  VÍS vinnur nú að innleiðingu á nýrri staðlaðri tryggingalausn frá danska hugbúnaðarframleiðandanum TIA Technology A/S.  Með því byggjum við sterkan grunn til framtíðar, njótum framþróunar á kerfinu með stórum hópi annarra notenda og getum einbeitt okkur enn betur að því að þjóna viðskiptavinum okkar á skilvirkan hátt.  Lausnir TIA eru þrautreyndar og í notkun hjá mörgum tryggingafélögum erlendis sem við horfum til.  Með því að staðla uppsetningu náum við að einfalda starfsemi félagsins og leggja áherslu á virðisaukandi þjónustu til viðskiptavina okkar.  Gert er ráð fyrir að fjárfestingin byrji að skila ávinningi um það bil ári eftir að innleiðingu lýkur en áætlað er að það verði á fyrri árshelmingi 2015 og að innleiðingin hafi óveruleg áhrif á afkomu félagsins á innleiðingartíma.

Þann 6. júlí síðastliðinn varð stór bruni í Skeifunni í Reykjavík sem olli miklu eignatjóni.  Áætlað er að áhrif þessa tjóns á eigin tjónakostnað VÍS verði um 250 mkr. eða sem nemur um 2% af eigin tjónakostnaði ársins 2013.“

Horfur

Stefna félagsins er að sækja og rækta samband sitt við núverandi og nýja viðskiptavini og viðhalda markaðsstöðu sinni.  Áhersla er á áhættumat og verðlagningu vátryggingaráhættu ásamt öflugu forvarnarstarfi til að fækka slysum og tjónum.  Markmið félagsins er að auka ánægju viðskiptavina enn frekar á sama tíma og unnið er að því að einfalda og auka skilvirkni í starfsemi félagsins og lækka kostnað.  Markmið félagsins er að samsett hlutfall á árinu 2014 verði lægra en það var á árinu 2013 en afkoma á fyrri árshelmingi og stórtjón á þriðja ársfjórðungi kunna að hafa neikvæð áhrif á að þetta markmið náist. Jafnframt er áhersla á trausta langtímaávöxtun á fjárfestingar í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.

Um VÍS

VÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði vátrygginga á Íslandi. VÍS nýtur sterkrar stöðu á íslenskum vátryggingamarkaði með liðlega þriðjungs markaðshlutdeild. Félagið býður upp á víðtæka vátryggingaþjónustu til viðskiptavina sinna þar sem rík áhersla er lögð á viðeigandi ráðgjöf um vátryggingavernd, gæði í þjónustu, skilvirkni og sveigjanleika.

Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga og líftrygginga og starfrækir félagið 39 þjónustuskrifstofur víðsvegar um land.  VÍS leggur áherslu á að starfsmenn og umboðsmenn félagsins vinni eftir grunngildum þess sem eru umhyggja, fagmennska og árangur.

Hlutverk VÍS

VÍS er traust, leiðandi og framsækið þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd og stuðlar að öryggi í samfélaginu með öflugum forvörnum.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 27. ágúst n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum.

Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

Fjárhagsdagatal

Viðburður                           Dagsetning:

3. ársfjórðungur 2014   30. október 2014

Ársuppgjör 2014           26. febrúar 2015

Aðalfundur 2015              12. mars 2015

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.

 


Attachments

Fréttatilkynning um afkomu VÍS 1H 2014.pdf Samstæða jan-júní 2014.pdf